This site has limited support for your browser. We recommend switching to Edge, Chrome, Safari, or Firefox.

Skilmálar

Barnalán ehf, kennitala 500821-1670, VSK númer 142109. Heimilisfang: Logafold 132, 112 Reykjavík.

Hægt er að hafa samband á netfangið barnalan@barnalan.is.

Þetta eru almennir skilmálar okkar. Þú getur lesið þér til um sérstaka skilmála og lágmarksleigutíma hverrar vöru á síðunni. Með því að samþykkja þessa skilmála ertu að staðfesta að þú hafir kynnt þér skilmála hverrar vöru fyrir sig. 

Greiðslur/áskrift
Með því að samþykkja þessa skilmála ertu að samþykkja að greiða mánaðarlega upphæð fyrir þær vörur sem þú leigir. Í pöntunarferlinu velur þú hversu lengi þú vilt leigja vöruna, með því að samþykkja þessa skilmála ertu að staðfesta að þú hafir yfirfarið pöntunina þína. Athugaðu að þú ert að skuldbinda þig til að leigja vörurnar í þann tíma sem þú valdir eða greiða uppgreiðslugjald ef þú vilt skila fyrr.

Ef leiga á vöru er ekki greidd á meðan á leigutíma stendur áskiljum við okkar þann rétt að rifta leigusamningi og endurheimta vöru þó leigutíma sé ekki lokið.

Ef vöru er ekki skilað að leigutíma loknum áskiljum við okkur þann rétt að rukka viðskiptavin fyrir heildarvirði vörunnar.

Skilaréttur
Ef þú ert óánægð/óánægður með vöru frá okkur geturðu alltaf haft samband og við reynum að finna út úr því saman. Ef vara passar ekki er 14 daga skilafrestur. Almenna reglan er sú að greiða þarf helming leigutímans sem eftir er ef segja á upp samningi áður en honum líkur.

Leiguverð er ekki endurgreitt nema varan sé gölluð. Við hvetjum þig þó til að hafa samband ef varan stenst ekki væntingar og við reynum okkar besta til að koma til móts við þig og finna lausn í sameiningu. Sendingargjald er ekki endugreitt nema um galla sé að ræða.

Hægt er að hætta við leigu áður en hún hefst og fá fulla endurgreiðslu. Ef um ferðavörur er að ræða er hægt að fá fulla endurgreiðslu ef hætt er við leigju 7 dögum áður en leigjan á að hefjast.

Ef þú ert að gefa gjöf þá er mikilvægt að láta okkur vita svo að við getum merkt vörurnar sérstaklega í kerfinu hjá okkur með dagsetningu. Gjafavöru má skila innan 14 daga frá skráðri dagsetningu (getur verið dagsetning sem gjöfin er gefin) og fær þá viðkomandi inneignarnótu.

Ef vara frá okkur er gölluð þá hefur þú val um að fá annað eintak af sömu vöru, endurgreiðslu eða inneignarnótu.

Afgreiðsla á vörum
Vörurnar eru sendar og sóttar heim að dyrum. Við gefum okkur 48 klst til þess að afgreiða hverja pöntun og þegar afgreiðslu er lokið er varan send strax í útkeyrslu. Gert er ráð fyrir því að vörum sé skilað hreinum og þrifnum og í þeim umbúðum sem þær komu í.
Heimsending á vörunum kostar hún 1490 kr og innifalið í sendingargjaldinu er að við sækjum vörurnar til þín.

Meðferð á vörum og ábyrgð leigjanda
Við leggjum okkur fram um að tryggja fyllsta hreinlæti og öryggi á vörum sem eru í leigu hjá okkur og á móti biðjum við leigjendur um að fara vel með vörur sem þau taka í leigu. 

Við viljum að vörurnar okkar séu notaðar án áhyggja og gerum ráð fyrir almennum slitum á vörum. Við áskiljum okkur rétt á að rukka sérstaklega fyrir hreinsun á vörum ef þörf er á. Dæmi um óeðlilegt slit væri óþrifnaður, reykingarlykt, sterk efnalykt, brot og/eða gat á vöru. Athugið að þessi listi er ekki tæmandi. Ef að hlutir týnast eða eyðileggjast þá skoðum við það í sameiningu en við áskiljum okkur þann rétt að rukka fyrir heildarverð vörunnar með tilliti til fyrri notkunar og leigu.

Persónuvernd og trúnaður
Við leggjum mikið upp úr trúnaði og heitum að fara vel með þínar upplýsingar. Upplýsingum er ekki undir neinum kringumstæðum deilt með þriðja aðila. Lestu persónuverndarskilmála okkar nánar hér.

Fyrirvari
Allar upplýsingar og verð eru birt með fyrirvara um innsláttarvillur. Barnalán áskilur sér rétt til þess að hætta við pöntun og endurgreiða hana komi í ljós að varan hafi verið vitlaust verðmerkt eða sé uppseld.

Komi til málshöfðunar milli kaupanda og seljanda um túlkun á skilmála þessa, gildi þeirra og efndir skal reka það fyrir Héraðsdómi Reykjavíkur. 

Cart

No more products available for purchase

Your Cart is Empty