This site has limited support for your browser. We recommend switching to Edge, Chrome, Safari, or Firefox.

Persónuverndarskilmálar

Persónuverndarskilmálar
Við hjá Barnalán leggjum mikið upp úr því að fara vel með allar þínar upplýsingar. Allar upplýsingar sem þú gefur upp þegar þú stundar viðskipti við Barnalán verða geymdar með öruggum hætti og ekki afhend þriðja aðila undir neinum kringumstæðum.

Söfnun upplýsinga
Við söfnum aðeins þeim persónuupplýsingum sem nauðsynlegt er til þess að geta veitt viðskiptavinum okkar viðeigandi þjónustu. Dæmi um nauðsynlegar upplýsingar eru greiðsluupplýsingar, heimilisfang, netfang og fleira. Upplýsingarnar eru geymdar með öruggum hætti og aðeins eins lengi og þörf er á. Við hjá Barnalán deilum upplýsingum þínum ekki undir neinum kringumstæðum með þriðja aðila.

Samskipti
Ásamt því að eiga samskipti við þig um afhendingar á vörum og annað beintengt viðskiptum þínum við okkur þá býðst þér að fá senda reglulega tölvupósta með tilboðum og kynningarefni á nýjum vörum hjá okkur. Þér er alltaf frjálst að afþakka tölvupósta frá okkur.

Vefkökur
Vefkökur (e. cookies) frá fyrsta aðila eru notaðar til að greina umferð um vefinn. Vefkökur eru ekki tengdar við persónuupplýsingar, nema í þeim tilvikum sem nefnd eru hér að ofan. Persónuupplýsingar eru aldrei vistaðar í vefkökunum sjálfum og eru ekki undir neinum kringumstæðum framseldar til þriðja aðila.

Vefkökur sem tilheyra þriðju aðilum (Google og Facebook) eru notaðar m.a. til þess greina notkun vefsetursins hvað varðar fjölda notenda og hegðun þeirra á vefsetrinu. Hægt er að nálgast upplýsingar um hvernig þessir aðilar nota vefkökur á vefsíðum þeirra.

Greiðslur
Allar greiðslur fara fram í gegnum örugga greiðslusíðu Rapyd og tekið er á móti helstu greiðslukortum.

Greiðslur fara sjálfkrafa af kortinu sem þú skráir á meðan leigutíma stendur. 

Ef þú vilt fá nánari upplýsingar um hvernig við geymum þínar persónuupplýsingar, ekki hika við að senda okkur tölvupóst á netfangið barnalan@barnalan.is.

Cart

No more products available for purchase

Your Cart is Empty