Þessi síða hefur takmarkaðan stuðning fyrir vafrann þinn. Við mælum með að skipta yfir í Edge, Chrome, Safari eða Firefox.

Spurt og svarað

Finnur þú ekki svarar við spurningunni þinni? Ekki hika við að hafa samband við okkur!
Hægt er að fylla út spurningaboxið hér að neðan eða senda póst á netfangið barnalan@barnalan.is.

LEIGAN

Hvernig virkar leigan?

Þú býrð þér til aðgangs, velur þér þær vörur sem þú vilt leigja og hversu lengi þú vilt leigja þær. Í greiðsluferlinu velur þú að lokum hvort þú viljir fá heimsent og sótt heim að dýrum eða hvort þú vilt kíkja til okkar að sækja.

Er lágmarks leigutími?

Já, við hverja vöru er tekin fram hver lágmarksleigutíminn er. Almenna reglan er sú að ferðavörur eru leiddar til skamms tíma og aðrar vörur eru í langtíma leigu. Öllum er þó frjálst að enda leigu þegar þeim hentar en skuldbinda sig þó að greiða fyrir þann tíma sem var valinn.

Hvað gerist ef hluti skemmist eða týnist?

Við skiljum að smávægileg óhöpp geta átt sér stað sem og venjuleg notkun á vörunni. Ef að hlutir týnast eða eyðileggjast þá skoðum við það í sameiningu en við áskilum okkur þann rétt að rukka fyrir heilaverð vörunnar með tilliti til fyrri notkunar og leigu.

Get ég stytt eða framlengt leigutímann?

Þegar leigutími hefst er ákveðinn skilatími og miðað er við að vöru sé skilað þá. Ef þú vilt lengja leigutímann mælum við með að þú hafir samband við okkur og athugir hvort vara sé laus og ef svo er þá er ekkert mál að framlengja. Ef þú vilt stytta tímann eða hætta leigu þarf að borga uppgreiðslugjald sem samsvarar helmingi af þeirri upphæð leigunnar sem eftir er. Ef þú ert með ótakmarkaða leigu þá hefur þú samband við okkur þegar þú vilt að leigunni ljúki og við græjum það.

Hvar og hvenær eru vörur afhentar?

Vörurnar eru sendar heim á mánudögum og fimmtudögum á milli kl 17-21. Heimsendingargjald kostar 1490 kr og innfalið í því gjaldi er að vörur eru sóttar að leigu lokinni. Þegar leigutíma er lokið eru vörurnar sóttar til leigutaka á sama tíma og er það innfalið í heimsendingargjaldi. Ef þú vilt ekki heimsendingu þá getur þú sótt og skilað vörum í 112 Grafarvogi á mánudögum og fimmtudögum milli kl 17-20. Frekari upplýsingar fylgja með í tölvupósti þegar pöntun hefur borist. Ef þessar tímasendingar henta illa er hægt að hafa samband og við reynum að finna aðra tímasetningu í sameiningu.

ÁSKRIFTIR

Hvernig virka áskriftir?

Þú velur þér fyrst áskriftarpakka úr stærð barnsins. Þar koma upp vörur sem eru í boði fyrir pakkann og þú hakar við þær vörur sem þú vilt fá í áskrift og velur fjölda pakkninga. Pakkinn er svo sendur til þín með Drop í hverjum mánuði á svipuðum tíma mánaðarins. Þeir sem eru í áskrift fá 10% af bleyjum og fylgihlutum.

Get ég breytt áskriftarpakkanum mínum?

Já, inn á aðganginum þínum getur þú stækkað og minnkað pakkann eftir þínum þörfum. Einnig er hægt að hafa samband við okkur og við breytum áskriftinni fyrir þig.

Hvernig segi ég upp áskrift?

Þú getur sagt upp áskriftinni inn á aðganginum þínum hvenær sem er. Engin skuldbinding er á áskriftum.

Get ég skilað vörum ef ég tók allt of stóra áskrift?

Já, öllum óopnuðum pökkum er hægt að skila og fá endurgreitt. Einnig er hægt að skila til okkar opnum pökkum og við lofum að koma þeim áfram til góðs málefnis. Ekki er hægt að fá endurgreitt fyrir opnaða pakka.

Hvar og hvenær eru vörur afhentar?

Allar bleyjuáskriftir og stakar vörur eru sendar með Dropp. Efir eru stakir pakkar er hægt að koma okkar og sækja ef þessir eru teknir til keyptir. Hægt er að sækja til okkar í Dalhúsum 23, 112 eftir samkomulagi.

Hafa samband

Karfa

Ekki er hægt að kaupa fleiri vörur

Karfan þín er tóm